Þjónusta
Segðu okkur hvaða verkefni þú ert að leggja upp í. Við aðstoðum þig frá upphafi.
Verkstjórn og reynsla
Láttu okkur um að stýra verkinu með metnað að leiðarljósi. Hafðu samband og segðu okkur hvaða verkefni þú ert að leggja upp í. Við aðstoðum þig frá upphafi. Í nýbyggingum skiptir verkstjórn og reynsla höfuðmáli og það má aldrei slaka á kröfum um vönduð vinnubrögð.
Við hjá Kjarnaverk höfum byggt íbúðablokkir jafnt sem sérbýli fyrir almennan markað og félagasamtök.
Byggingastjórn
Hægt er að leita til okkar með fyrirspurnir um verkframkvæmdir. Kjarnaverk tekur að sér byggingastjórn á stærri verkefnum þar sem margir iðnmeistarar koma að, hver með sínum hætti.
Oft er það hagkvæmari kostur fyrir verkkaupa að leita til okkar með stjórnun verks þegar margir aðilar koma að byggingarþættinum.
Epoxýgólf
Sjálfútleggjandi epoxýgólf frá Kjarnaverk ehf. Epoxýefnin sem við notum eru frá Mapei, níðsterk og endingargóð. Þau henta vel í bílskúra, þvottahús, iðnaðarhúsnæði og fleira.
Þakviðgerðir
Tökum að okkur alhliða þakviðgerðir á húsum. Fáðu tilboð hjá okkur í þakviðgerðir og viðhald á þínu húsi.
Gluggar og hurðir
Við bjóðum glugga og hurðir fyrir þitt húsnæði. Viltu tvöfalt gler eða jafnvel þrefalt gler?
Timburglugga og hurðir eða tré/ál glugga og hurðir?
Við höfum metnað og reynslu fyrir þínu húsnæði.
Sérsmíðuð hús
Vönduð heilsárshús, hönnuð og smíðuð frá grunni á Íslandi fyrir íslenskar aðstæður, eftir þínu höfði. Afhent fullbúin með palli.
Vinnubúðir
Tilbúin einingarhús sem nýtast einkar vel sem vinnubúðir fyrir stærri framkvæmdir. Hverjar eru þarfir þíns verkafólks?
Steinsteyptir dregarar og undirstöður
Góðir og vandaðir dregarar skipta sköpum í nýbyggingum. Dregarar frá Kjarnaverk ehf. fara vel undir sumarhús, palla og fleira. Hagkvæm, traust og fljótleg lausn.